Bjórhátíð Ölverk 6. - 7. október 2023 // Beerfestival in Iceland
August 16, 2023

Bjórhátíð Ölverk 6. - 7. október 2023 // Beerfestival in Iceland

Ölverk brugghús kynnir bjórhátíð sem enginn sannur bjór-, matar-, og drykkjarsælkeri ætti að láta framhjá sér fara!

 

Bjórhátíðin mun fara fram helgina 6. til 7. október í alvöru ylræktar gróðurhúsi sem staðsett er miðsvæðis í Hveragerði en miðasala mun hefjast fimmtudaginn 27. júlí kl 12:00 inn á tix.is

 

Sjá staðfesta framleiðendur hér fyrir neðan en þessi listi er ekki tæmandi og mun uppfærast reglulega fram að sjálfri bjórhátíðarhelginni:

- Bjórsetrið ( Hólar í Hjaltadal )
- Álfur brugghús ( Garðabær )
- The Brothers Brewery ( Vestmannaeyjar )
- Agla gosgerð ( Reykjavík )
- Galdur brugghús ( Hólmavík )
- Borg brugghús ( Reykjavík )
- RVK Brewing Co. ( Reykjavík )
- Jökla ( Reykjavík )
- Brennivín ( Reykjavík )
- Bruggsmiðjan Kaldi ( Árskógssandur )
- Ölverk brugghús ( Hveragerði )
- Mjólkursamsalan ( Selfoss / Reykjavík )
- Litla Brugghúsið ( Garður )
- Smiðjan brugghús ( Vík í Mýrdal )
- Lady Brewery ( Reykjavík )
- Austri brugghús ( Egilsstaðir )
- Mói brugghús ( Garðabær )
- Malbygg brugghús ( Reykjavík )
- Kjörís ( Hveragerði )
- Gæðingur brugghús ( Kópavogur )
- Ægir brugghús ( Reykjavík )
- Segull 67 ( Siglufjörður )
- Böl Brewing ( Reykjavík )
- Hella Bjór ( Hellu )
- 6a Kraftöl ( Akureyri )
- Víking brugghús ( Akureyri )
- Grugg & Makk ( Reykjavík ) 

- Könglar ( Hallormsstaður ) 
- Mývatn Öl ( Mývatn )
- Dokkan Brugghús (Ísafjörður)
- Kombucha Iceland ( Reykjavík )
- Reykjavík distillery ( Reykjavík )
- Urban Farm Fermentory ( Portland / US )
- Icelandic Glacial Water ( Ölfus )

 

Dagskrá

Föstudagurinn 6. október
17:00 - 20:00 - Bjórhátíðarstemning og smakk frá framleiðendum
20:30 - 21:00+ Tónlistaratriði Emmsjé Gauti 
21:30 - 01:00  Gullfoss og Geysir - danspartý

Laugardagurinn 7. október

16:00 - 20:00 - Bjórhátíðarstemning og smakk frá framleiðendum

18:00 - 20:30  DJ Atli Kanill
20:30 - 21:00+ Tónlistaratriði  PRETTYBOITJOKKO 
21:30 - 01:00 Danspartý með FM Belfast (DJ)

 

----- Aðrar hagnýtar upplýsingar -----

 

Staðsetning
Ölverk bjórhátíðin fer fram í gömlu, heitu ylræktargróðurhúsi fyrir aftan Ölverk pizza & brugghús, eða nánar tiltekið í Þelamörk 29 - Hveragerði.

 

Miðaverð
Helgararmband 13.900,-
Föstudagsarmband 8500,- ( takmarkað magn í boði )
Laugardagsarmband 8500,- ( takmarkað magn í boði )

 

Innifalið í miðaverði
Sérmerkt armband á einstaka bjór,- og tónlistarhátíð, afnot af sérmerktu Ölverk glasi, smakk á vörum frá hinum ýmsu framleiðendum, tækifæri til þess að þess að eiga skemmtilegt samtal við fólkið á bakvið vörumerkin, sérvalin tónlistaratriði og DJ danspartý.

Athugið smakkglösunum skal skila við útgang bjórhátíðarsvæðisins en hægt er að kaupa glasið fyrir 500,-.

 

Afhending armbanda
Fimmtudaginn 5. október verður á milli 18:00-21:00 hægt að nálgast armbönd gegn framvísun miða / kóða á Ölverk Pizza & Brugghúsi í Hveragerði.

Sjálfa bjórhátíðarhelgina, föstudaginn 6. október og laugardaginn 7. október, mun afhending armbanda fara fram við hátíðarsvæðið eða inn á veitingarstað Ölverk.

 

Aldurstakmark
20 ára aldurstakmark er á bjórhátíðina ( hafið skilríki meðferðis )

 

Gisting
Hægt er að skoða úrval gististað hér í Hveragerði inn á heimasíðu Ferðamálasamtaka Hvergerðisbæjar ( https://www.visithveragerdi.is/gisting-1 ) en einnig er að finna aðra gistikosti eins og Airbnb húsnæði, hostel, og sumarbústaði í Hveragerði, Ölfusi sem og á Selfossi.

 

Samgöngur
Allar upplýsingar um Strætóferðir til og frá Hveragerði er að finna inn á www.straeto.is

 

Bílastæði
Nóg er af bílastæðum á malarplaninu á móti bjórhátíðarsvæðinu.

 

Veitingasala
Veitingasala verður á bjórhátíðarsvæðinu alla helgina en einnig verður opið á veitingarstað Ölverk samkvæmt opnunartíma (eldhúsið hættir að við pöntunum kl 21:00).

 

Nánari upplýsingar
Spurningar og fyrirspurnir sendist á olverk@olverk.is